Gleðilegt nýtt ár ágætu stuðningsfulltrúar.
Sendi ykkur öllu kærar kveðjur félagsins hvar á landinu sem þið leggið lið í skólaumhverfi nútímans.
Það var ætlunin að senda hér inn pistil fyrir löngu, en því miður er hann nú fyrst að líta dagsins ljós. Ég ætla þó að vona að þetta komi ekki í veg fyrir að þið látið í ykkur heyra hér á síðunni.
Hér að framan er að sjá helstu fréttir frá félaginu sem enn lifir ágætu lífi þrátt fyrir allt. Langar mig einnig að geta þess sem er á döfinni.
Mig langar að minna ykkur á að áætlað er að halda aðalfund félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík í mars n.k. Þá verður kosið í stjórn félagsins því eins og ákveðið var á stofnfundinum var undirbúningshópnum ætlað að starfa þar til kosin yrði stjórn. Þið sem áhuga hafið á að starfa í félaginu endilega látið vita af ykkur og mætið. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar.
Í undirbúningshópnum eru:
Aðalheiður Oddsdóttir, Vogaskóla - adalheiduro@vogaskoli.is
Guðríður Erlingsdóttir, Hólabrekkuskóla - guja@structor.is
Ingunn H. Guðjónsdóttir, Hólabrekkuskóla - ingahrodny@simnet.is
Margrét I. Karlsdóttir - margkarl@khi.is
Ólína J. Jónsdóttir, Ártúnsskóla - olinaj@simnet.is
Sigríður Sigurbjartsdóttir, Hamraskóla - ssigurbjarts@hotmail.com
Hvet ég ykkur til að láta vita af þessari síðu sem lifir þrátt fyrir allt.
Látum verkin tala og sínum að okkur er annt um félagið okkar.
Bestu kveðjur að sinni,
Ingunn H. Guðjónsdóttir
Eins og flestir eflaust vita sem málið varðar, þá hefur nám stuðningsfulltrúa ekki enn verið metið til launa. Þáverandi borgarstjóra Reykjavíkur var send áskorun þess efnis slíðastliðið vor. Við Ólína J. Jónasdóttir fórum á fund borgarstjóra og höfum síðan verið að vinna að þessu máli. Við funduðum með Birgi Birni Sigurjónssyni fjármálastjóra og Inga Geir Hreinssyni starfsmatsráðgjafa þar sem farið var yfir starfsmatið og þætti þess. Við funduðum einnig með Valgerði Janusdóttur hjá starfsmannaþjónustu menntasviðs, ásamt Jakobínu Þórðardóttur hjá Starfsmannafélaginu þar sem starfsmatið var áfram skoðað og hvaða þætti þess væri hugsanlegt að hækka, ef farið yrði í endurmat á starfinu. Valgerður hafði áður fundað með ráðamönnum tveggja skóla, þar sem þetta var einnig skoðað.
Að öllu þessu loknu sendum við Ólína svo inn beiðni um endurmat á starfi okkar þann 17. desember síðastliðinn. Þannig standa málin og verður fróðlegt að vita hvernig fer.
Fundur félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík var haldinn á Grettisgötunni í húsi starfsmannafélagsins. Þar mættu 18 manns og var byrjað með kaffi og bakkelsi.
Við skiptum okkur í spjallhópa, sem hver ræddi um 3 ákveðin mál.
1. Hvernig nýtum við undirbúningstímana ?
2. Samvinnan í skólastofunni/skólanum.
3. Hvernig getum við styrkt stöðu okkar sem stuðningsfulltrúa ?
Eftir umræður kynntu hóparnir niðurstöður sínar. Fram kom að u.þ.b. helmingur hefur ekki undirbúningstíma, annað hvort fá hann ekki eða hann er reiknaður upp í frí. Í einu tilviki hafði þetta ekki verið kynnt fyrir stuðningsfulltrúum viðkomandi skóla þannig að þeir vissu ekki af þessu.
En þeir sem hafa undirbúningstíma nota hann að sjálfsögðu til þess sem hann er ætlaður. Allir sögðu samvinnu í skólastofunni/skólanum vera góða og miklar breytingar til hins betra frá því þeir byrjuðu í starfinu. Starf stuðningsfulltrúa á að vera fullt starf, en víða er aðeins um 75% að ræða. Það ásamt aukinni menntun myndi styrkja stöðu okkar. Stuðningsfulltrúar þurfa einnig að sýna áhuga á eigin málum, standa betur saman og vera stoltir af starfinu.
Eftir þetta svaraði Jakobína Þórðardóttir hjá Starfsmannafélaginu fyrirspurnum fundarmanna.
Að lokum flutti svo Þórkatla Þórisdóttir erindi sitt; Dropinn holar steininn, þar sem hún talaði um sjálfsmyndina, um líðan í starfi og hvernig við sjálf getum haft áhrif í þeim efnum. Að bera virðingu fyrir sér og vera sáttur við sig hefur mikið um það að segja. Að vanda var mjög fróðlegt og skemmtilegt að hlusta á Þórkötlu.
21. september 2007 – 20.29
Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík boðar til fræðslufundar fimmtudaginn 4. október
kl. 17 að Grettisgötu 89 í húsi Starfsmannafélags Reykjavíkur.
Dagskrá:
1. Dropinn holar steininn erindi Þórkötlu Þórisdóttur kennara og félagsráðgjafa.
2. Önnur mál.
Stuðningsfulltrúar eru hvattir til að mæta.
Undirbúningshópurinn
Ágætu stuðningsfulltrúar. Sendi ykkur hér örfá orð í byrjun skóla.
Lengi hefur staðið til að birta fundarfréttir frá síðastliðnu vori og hér eru þær loksins komnar. Eins og fram hefur komið var aðalfundur Félags stuðningsfulltrúa í leik- grunn- og framhaldsskólum sá síðasti að sinni. Þar sem ekki tókst að fá fólk til starfa í stjórn félagsins var ákveðið að leggja félagið í dvala um sinn, en reyna að koma á stofn smærri félögum. Félagið er svo hægt að endurvekja hvenær sem vill og þegar grundvöllur er kominn fyrir starfsemi þess. Eins og stendur virðist hann enginn vera. Við stuðningsfulltrúar megum samt ekki leggja árar í bát. Því vil ég skora á ykkur að taka höndum saman og stofna félög eftir því sem best hentar. Minni á að stuðningsfulltrúar við Eyjafjörð stofnuðu félag fyrir nokkrum árum og að stuðningsfulltrúar á Reykjanesi hafa staðið vel saman.
Stuðningsfulltrúastarfið er mikilvægt í skólasamfélaginu. Það er ungt og í mótun. Margt hefur áunnist, þó margt sé eftir. Það tekur tíma en við getum haft áhrif þar á. Við þurfum að hafa skoðanir og láta þær í ljósi við samstarfsfólk okkar. Við verðum að líta í eigin barm en ekki ætlast til að allt gerist af sjálfu sér. Við verðum að vera tilbúin að leggja okkar af mörkum líka. Það stuðlar að góðu samstarfi allra innan skólans.
Ég mun halda áfram að starfa með Reykjavíkurfélaginu og eins og áður sagði stefnum við að fræðslufundi í september. Heimasíðan er opin og vonandi verða stuðningsfulltrúar duglegir að senda efni þar inn.
Bestu kveðjur til ykkar,
Ingunn H. Guðjónsdóttir - ingahrodny@simnet.is
Lokafundur fráfarandi stjórnar haldinn á Cafe Milan miðvikudaginn 6.júní 2007.
Mættar voru:
Ingunn H. Guðjónsdóttir Hólabrekkuskóla, Guðbjörg Ólafsdóttir Snælandskóla, Halldóra J. Sanko Mýrarhúsaskóla, Aðalheiður Oddsdóttir Vogaskóla, Ólína Jóhannsdóttir Ártúnsskóla og Margrét Inga Karlsdóttir Ingunnarskóla
Fram fór umræða um peningana sem Félag stuðningsfulltrúa í leik-, grunn- og framhaldsskólum á Íslandi á. Ákveðið var að setja peningana inn á biðbók í Landsbankanum í Mjóddi. Prókúruhafar eru Ingunn H. Guðjónsdóttir og Guðbjörg Ólafsdóttir.
Félagið formlega lagt í dvala bili.
Fundaritari var Halldóra J. Sanko.
Lög Félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík
Félagið heitir Félag stuðningsfulltrúa í Reykjavík
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík
Tilgangur félagsins er: að efla samheldni félagsmanna, auka færni og þekkingu
og stuðla að bættum hag þeirra.
Félagar geta talist allir starfandi stuðningsfulltrúar í grunnskólum Reykjavíkur.
Félagsmaður sem lýkur starfsævinni sem stuðningsfulltrúi verður heiðursfélagi. Heiðursfélagar hafa atkvæðisrétt á fundum.
Aðalfundur skal haldinn í byrjum mars ár hvert og til hans boðað með 2 vikna fyrirvara. Telst hann þá lögmætur.
Í upphafi fundar skal tilnefna fundarstjóra og ritara.
Á aðalfundi skal stjórn gera grein fyrir störfum félagsins.
Kjósa stjórn eftir því sem reglur segja (6.grein).
Afgreiða önnur mál er fyrir liggja.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi.
Skylt er að boða til lagabreytinga í fundarboði síðasta fundar fyrir aðalfund, enda skal tillaga kynnt á þeim fundi.
Stjórn félagsins skipa 5 manns sem skiptir með sér verkum.
Skal formaður kosinn til tveggja ára í senn aðrir til þriggja ára. Stjórn skal boða til funda þegar ástæða er til, þó ekki sjaldnar en tvisvar á ári.
Fræðslufund skal hafa árlega í september.
Skylt er að boða til fundar ef a.m.k. ¼ félagsmanna krefst þess.
Félagið er sjálfstæð deild innan landssamtaka stuðningsfulltrúa í leik- grunn- og framhaldsskólum á Íslandi.
Stofnfundur Félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík.
Þann 27.mars var haldinn stofnfundur félags stuðningsfulltrúa í Reykjavík. Stofnfélagar voru alls 29. Þeir sem stóðu að undirbúningi þessa félags voru:
Aðalheiður Oddsdóttir Vogaskóla adalheiduro@vogaskoli.is
Guðríður Erlingsdóttir Hólabrekkuskóla guja@structor.is
Ingunn H Guðjónsdóttir Hólabrekkuskóla ingahrodny@simnet.is
Margrét Inga Karlsdóttir Ingunnarskóla margkarl@khi.is
Ólína J Jónasdóttir Ártúnsskóla olinaj@simnet.is
Sigríður Sigurbjartsdóttir Hamraskóla ssigurbjarts@hotmail.com
Til aðstoðar var Jakobína Þórðardóttir varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkur en félagið er faghópur innan þess. Á þessum fyrsta fundi voru samþykkt lög fyrir félagið og ákveðið að halda næst fræðslufund í september. Fundurinn samþykkti að senda áskorun til borgarstjóra Reykjavíkur þess efnis að meta til launa nám stuðningsfulltrúa. Var Ólínu J. Jónasdóttur og Ingunni H. Guðjónsdóttur falið þetta verk.
Miðvikudaginn 23. apríl var borgarstjóra Reykjavíkur Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni svo send áskorun frá félaginu. Samrit var sent sviðsstjóra menntasviðs Ragnari Þorsteinssyni og formanni Starfsmannafélags Reykjavíkur Garðari Hilmarssyni. Einnig var beðið um viðtal við borgarstjóra. Löng bið var eftir viðtali, en áheyrn fékkst þann 30.maí. Farið var yfir málið og sagðist borgarstjóri láta skoða það.
Síðastliðinn föstudag 17. ágúst hafði formaður samband við ritara borgarstjóra og spurði um málið. Ætlaði hann að kanna hvernig það stæði og láta vita.
Ingunn H. Guðjónsdóttir, formaður
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2006
Nokkrir fundir voru hjá stjórninni á árinu. Voru þeir með ýmsu móti. Við hittumst á kaffihúsum og öðrum húsum, en höfðum einnig samskipti í síma og tölvu.
Aðalfundur félagsins var haldinn í Lágafellsskóla í lok maí þar mættu 33 stuðningsfulltrúar.
Í haust stóð Reykjavíkurhluti stjórnarinnar ásamt Starfsmannafélaginu fyrir fundi með þeim stuðningsfulltrúum sem lokið hafa náminu í Borgarholtsskóla og starfa í Reykjavík. Kristín Lillendahl flutti þar erindi og var fundurinn mjög vel sóttur.
Kennarafélag Reykjavíkur bauð stuðningsfulltrúafélaginu að taka þátt í málþingi sem haldið var í október og bar yfirskriftina, “ Eru til aðstoðarkennarar ?” Frummælendur voru frá Kennarafélaginu, Menntasviði Reykjavíkur, Ágúst Ólason fyrrverandi formaður okkar félags og svo núverandi formaður félagsins. Ingunn H. Guðjónsdóttir og Ólína J. Jónasdóttir unnu þetta saman og ákváðu að nota þennan vettvang til að kynna starfið okkar, þar sem þetta væri upphaf að samstarfi milli þessara aðila.
Í nóvember gerði Reykjavíkurhlutinn tilraun til stofnunar félags í Reykjavík samkvæmt ályktun aðalfundarins. Á þann fund mættu aðeins 12 manns og var ákveðið að reyna aftur eftir áramót og þá með aðstoð Starfsmannafélags Reykjavíkur. Í mars var svo Stuðningsfulltrúafélag Reykjavíkur stofnað með 23 stuðningsfulltrúum.
Fundurinn sendi áskorum til borgarstjóra, þess efnis að meta til launa 72 eininga sérhæft nám stuðningsfulltrúa, samrit var sent sviðsstjóra Menntasviðs og formanni Starfsmannafélagsins. Engin svör hafa borist við þessari áskorun, en fulltrúar eiga pantað viðtal við borgarstjóra. Stefnt er að fræðslufundi Reykjavíkurfélagsins í september.
Stjórnin hefur verið að reyna að ýta á eftir launahækkun til handa þeim sem lokið hafa náminu. Því miður hefur ekkert gengið í þeim efnum enn.
Stjórnin.
Aðalfundur stuðningsfulltrúa haldinn í Hólabrekkuskóla 21.05.2007
Bryndís var kjörinn fundarstjóri.
Fundurinn hófst á því að Ingunn H. Guðjónsdóttir formaður flutti ávarp. Í framhaldi las Margrét Gróa Björnsdóttir skýrslu stjórnar. Margrét Inga las upp reikninga félagsins og voru þeir samþykktir með handauppréttingum.
Nokkur umræða varð um fundarboð en einhverjir hafa ekki fengið fundarboð á þennan fund. Fram kom sú hugmynd að senda auglýsingu á starfsmannafélög og trúnaðarmenn í skólunum.
Leitað var eftir fólki í stjórn, enginn gaf kost á sér.
Umræða varð um launamál stuðningsfulltrúa sem lokið hafa námi í Borgarholtsskóla.
Fundarstjóri kom með þá tillögu að gera hlé og bjóða upp á kaffi. Þá væri hægt að ræða málin frekar og kannski gæfi sig einhver fram sem sitja vill í stjórn.
Jensína úr Bolungarvík ætlar að hóa saman í sínum heimabæ.
Sólveig í Breiðholtsskóla ætlar að leggjast undir feld og ætlar að skoða málið.
Fundargestir lögðu til að leggja félagið niður í bili.
Fundaritari var Margrét Gróa Björnsdóttir
Mættir voru 32 stuðningsfulltrúar.